Skapandi ferli tölvuleikja 8. apríl í CCP
[CLICK HERE FOR ENGLISH]
Samtal um skapandi greinar: Skapandi ferli tölvuleikja
Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) í samstarfi við CCP býður í samtal um skapandi greinar miðvikudaginn 8. apríl klukkan 10:15 – 11:45 í húsakynnum CCP Í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Viðburðurinn fer fram á ensku að þessu sinni.
Við vekjum athygli á því að fundirnir fara yfirleitt fram fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl. 8.30 en að þessu sinni er um annan vikudag að ræða og aðra tímasetningu.
Að þessu sinni beinum við sjónum okkar að tölvuleikjagerð sem skapandi grein og þeim fjölbreyttu og skapandi ferlum sem liggja að baki þróun leikja. Fjallað verður um hvernig aðrar skapandi greinar og tæknileg vinna fléttast inn í ferlið og hvaða áskoranir og tækifæri fylgja því að starfa sem leikjahönnuður. Viðburðurinn fer fram á ensku.
Við fáum til okkar fjóra fyrirlesara sem veita okkur innsýn inn í skapandi ferlið:
Halldór Snær Kristjánsson, framkvæmdastjóri, listrænn stjórnandi og meðstofnandi Myrkur Games
María Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Parity Games
Joon Van Hove, sjálfstætt starfandi leikjahönnuður
Steingerður Lóa Gunnarsdóttir, sjálfstætt starfandi leikjahönnuður og stundakennari við Háskólann í Reykjavík
Erindum verður streymt en í kjölfar erinda lýkur streyminu og opnað verður fyrir umræður meðal viðstaddra.
CCP býður viðstöddum upp á kaffi.
Nánari upplýsingar, dagskrá og skráningu má nálgast HÉR.