Samtal 7. maí um fortíð, nútíð og framtíð auglýsinga
Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG), í samstarfi við Samtök íslenskra auglýsingastofa (SÍA), Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og CCP, býður í samtal um skapandi greinar fimmtudaginn 7. maí klukkan 8:30 –10:00 í húsakynnum CCP Í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Viðburðurinn er á dagskrá HönnunarMars 2026 og erindin verða einnig í beinu streymi.
Á samtalinu verður fjallað um hvernig auglýsingageirinn hefur þróast á undanförnum árum og þær áskoranir og tækifæri sem auglýsingastofur standa frammi fyrir, ekki síst í tengslum við nýja tækni. Hvað hefur breyst og hvernig mun auglýsingageirinn líta út eftir 10 ár?
Við fáum til okkar þrjá fyrirlesara:
Erlu Maríu Árnadóttur, stefnustjóra sköpunar hjá Hvíta húsinu
Önnu Kristínu Kristjánsdóttur, formann SÍA - Samtaka íslenskra auglýsingastofa
Sigtrygg Magnason, forstöðumann miðlunarsviðs hjá Samtökum atvinnulífsins
CCP býður fundargestum upp á kaffi og léttan morgunverð.