Samtal um skapandi greinar: Hvað þarf að ræða?
[ENGLISH BELOW]
Fimmtudaginn 5. mars býður RSSG til annars konar fundar innan fundaraðarinnar Samtal um skapandi greinar. Að þessu sinni verða engin formleg erindi eða pallborð. Í staðinn einblínum við alfarið á opið samtal og að skapa rými þar sem þátttakendur geta rætt bæði sín á milli og við okkur. Fundurinn fer fram í CCP í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík, kl. 8.30-10.15.
Tengslanetið í kringum Rannsóknasetur skapandi greina hefur farið ört vaxandi og við viljum nýta tækifærið til að bjóða fólki úr ólíkum áttum skapandi greina að hittast, miðla reynslu og ræða málin saman. Við hvetjum iðkendur, stjórnendur, fræðafólk, stefnumótendur og alla sem hafa áhuga á skapandi greinum til að taka þátt samtalinu. Þátttakendur raða sér við borð þar sem hópstjóri heldur utan um umræður og tekur saman helstu punkta. Við hvetjum fólk til að mæta snemma og næla sér í kaffi og morgunmat í boði CCP. Teams-fundur verður einnig í boði fyrir þau sem ekki komast á staðinn, fjöldi þeirra fer eftir skráningu. Þá fer samtalið fram á ensku á 1-2 borðum (eftir skráningu). Þátttakendur geta lagt fram tillögur að umræðuefnum við skráningu.
Markmið fundarins eru að:
öðlast dýpri innsýn í stöðu og mögulega framtíð skapandi greina á Íslandi
greina spurningar sem vert er að rannsaka, ræða og þróa frekar
skapa opið samtalsrými fyrir fjölbreyttan hóp þátttakenda.
Dagskrá og skráningu má nálgast HÉR
—
On Thursday, 5 March, the Creative Industries Research Centre (RSSG) invites you to a different kind of session within the Dialogue on Creative Industries series. This time, there will be no formal presentations or panel discussions. Instead, we focus entirely on open dialogue and creating space for participants to talk with one another. The meeting will take place at the CCP offices in Gróska, 3rd floor, at Bjargargata 1, 102 Reykjavík.
As the network around RSSG has been steadily growing, we want to offer a moment for people across the creative field to connect, exchange experiences, and reflect together. We invite practitioners, researchers, policymakers, institutional leaders, and anyone with an interest in the creative field to join us for a morning of guided but flexible conversation. Participants will gather at tables, each with a facilitator who supports the discussion and gathers key points. We encourage you to arrive early, grab a coffee and breakfast provided by CCP, and ease into the conversation. The conversation at at least one of the tables will take place in English and for those who cannot attend in person, we will provide a Teams meeting. People may propose topics when registering
Our goals for the session are:
to gain deeper insight into the current state and future direction of the creative sector in Iceland
to identify questions that merit further research, dilalogue and development
to create an open, equitable space for shared dialogue across a diverse group of participants
Please see more detailed information, the agenda and registration form HERE