Heimsókn RSSG til UOC í Barcelona

Starfsfólk og stjórnarmeðlimir RSSG ásamt Ramon Ribera Fumaz, forstöðumanni TRANSIC. F.v. Anna Hildur (lektor við Háskólann á Bifröst, fagstjóri BA náms í skapandi greinum, og formaður stjórnar RSSG), Steinunn (verkefnastjóri), Ramón, Erla (forstöðukona) og Ólína (deildarforseti félagsvísindadeildar og fulltrúi Háskólans á Bifröst í stjórn RSSG).

Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) er þessa dagana í heimsókn í Barcelona ásamt samstarfsfólki í félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst. Tilefni ferðarinnar er heimsókn til Universitat Oberta de Catalunya (UOC), þar sem markmiðið er að kynnast rannsóknastarfsemi og -skipulagi, að efla alþjóðlegt samstarf og styrkja tengsl við fræðafólk sem tengjast starfssviði RSSG, beint eða óbeint.

Við UOC starfa rannsakendur í fjölbreyttum og þverfaglegum rannsóknahópum, sem hver og einn heyra undir rannsóknamiðstöðvar. RSSG lagði sérstaka áherslu á að hitta fólk sem starfa á sviðum sem snerta skapandi greinar, í víðum skilningi, meðal annars fulltrúa rannsóknasetursins TRÀNSIC (Interdisciplinary Research Centre on Social and Cultural Transformations) og rannsóknahópana TURBA-Lab (Urban Transformation and Global Change Laboratory) IDENTICAT (Language, Culture and Identity in the Global World) og DARTS (Design, Art, Technology and Society), sem báðir starfa undir hatti TRÀNSIC.

Ferðin hefur veitt okkur dýrmæta innsýn í skipulag og utanumhald rannsókna og rannsóknahópa, auk þess sem hún hefur styrkt tengsl við rannsakendur og starfsfólk UOC. UOC og Háskólinn á Bifröst eru meðal samstarfsaðila í Open EU, evrópsku háskólasamstarfi sem vinnur að því að byggja upp sameiginlegt, opið og stafrænt háskólasvæði, sjá nánar HÉR.

Rannsóknasetur TRÀNSIC beinir sjónum sínum að félagslegum og menningarlegum breytingum út frá sjónarhorni félagsvísinda, hugvísinda og lista.

Rannsóknahópurinn TURBA Lab is an interdisciplinary research group that studies the socio-environmental, socio-economic, and technological transformations of digital capitalism and grassroots alternatives, focusing on their uneven impacts across urban and multi-scale geographies.

Rannsóknahópurinn IDENTICAT er þverfaglegur hópur skipaður félagsmálfræðingum, sagnfræðingum og sérfræðingum á sviði menningarstefnu, bókmennta, lista og menningarfræða.

Rannsóknahópurinn DARTS vinnur á mörkum lista, hönnunar, tæknivísinda og samfélags. Rannsóknir hópsins byggja á þríþættri nálgun — hagnýtri, fræðilegri og sögulegri — og leggja sérstaka áherslu á notkun upplýsinga- og samskiptatækni í kennslu og sköpun á sviði lista og hönnunar.

Next
Next

Samtal um skapandi greinar: Er hægt að mæla samfélagsáhrif skapandi greina?