Staða og framtíð lifandi tónlistarflutnings í Reykjavík  

Mengi

Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) vinnur að nýju rannsóknarverkefni fyrir Tónlistarborgina Reykjavík um stöðu og framtíð lifandi tónlistarflutnings í borginni. Verkefnið er leitt af Michael Hendrix, tónlistarmanni, hönnuði og kennara, í samstarfi við RSSG.  

Tónlistarsenan stendur frammi fyrir ýmsum áskorunum en meðal þeirra eru lokanir fjölmargra mikilvægra tónleikastaða, sem vakið hafa athygli og umræðu undanfarin misseri. Þrátt fyrir umræðuna skortir áreiðanleg gögn eða rannsóknir um hvernig tónlistarviðburðir, staða tónleikastaðir, húsnæðismarkaður, ferðaþjónusta og borgarþróun spila saman.   

"Við störf mín hjá Tónlistarborginni Reykjavík fæst ég við að hlúa að aðstöðu til lifandi tónlistarflutnings í borginni. Töluleg gögn um stöðu reykvískrar tónlistar hafa alltaf verið af skornum skammti sem gerir tónlistarfólki, tónleikastöðum og tónlistarskólum erfiðara fyrir í hagsmunabaráttu og kjaraviðræðum. Þessu þarf að breyta. Með samningi Tónlistarborgarinnar og rannsóknasetursins er tekið skref í rétta átt, tónlistarsamfélaginu og almenningi til heilla", segir Ása Dýradóttir, verkefnastjóri Tónlistarborgarinnar Reykjavík. 

Hljómsveitin Skurðgoð að spila í Kaldalóni í Hörpu

Verkefnið byggir annars vegar á tölfræðigögnum frá hugbúnaðarfyrirtækinu Mobilitus og hins vegar á viðtölum við tónleikahaldara og annað forsvarsfólk tónleikastaða. Tölfræðigögnin ná utan um tónlistarviðburði á árunum 2022-2025 en með viðtölunum er ætlunin að kafa dýpra ofan í stöðu tónleikastaðanna, áskoranir og tækifæri, húsnæðis- og rekstraraðstæður og langtímaþróun í vistkerfi lifandi tónlistar í Reykjavík. Með því að sameina megindlegar og eigindlegar aðferðir mun verkefnið skapa traustan þekkingargrunn fyrir Tónlistarborgina Reykjavík og aðra hagaðila.   

Michael segir um verkefnið: "As a professor working in cultural industries and design, and as a practicing musician, I feel strongly about the importance of this work. While challenges within the live music ecosystem are widely acknowledged, the absence of consistent and systematic data has limited the ability to inform policy. This project aims to establish a baseline of both quantitative and qualitative data that will serve as the foundation for an ongoing annual record, enabling future evaluation and analysis." 

Rannsóknin er vel á veg komin en stefnt er að því að ljúka henni í vor. Vonast er til að unnt verði að koma á fót árlegum „örviðtölum” við rekstraraðila, tónlistarfólk og áhorfendur, til að fylgjast með breytingum yfir tíma og greina tímanlega merki um nýjar áskoranir og tækifæri. 

Next
Next

Samtal um skapandi greinar: Hvað þarf að ræða?