Samtal um skapandi greinar: Er hægt að mæla samfélagsáhrif skapandi greina?

Er hægt að rýna í hvernig skapandi starfsemi mótar samfélagslegar breytingar og hvort þær séu mælanlegar? Hvernig getum við greint og metið áhrif skapandi greina á samfélagið og einstaklinga? Geta mælingar á samfélagsáhrifum skapandi greina varpað nýju ljósi á gildi þeirra í samtímanum? Geta aðferðir til mats á samfélagsáhrifum opnað fyrir nýja sýn á hlutverk skapandi greina?

Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) í samstarfi við CCP, Listaháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri býður í samtal um skapandi greinar fimmtudaginn 5. febrúar klukkan 8:30 - 10 í húsakynnum CCP Í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Þar verður fjallað um mælingar á samfélagsáhrifum skapandi greina og er samtalið hluti af Jafnréttisdögum háskólanna 2026. Viðburðinum verður streymt af Facebook og birtur á vefsíðu Jafnréttisdaga mánudaginn 9. febrúar, ásamt miðlum RSSG.

Ítarlegri dagskrá og skráning HÉR.

Þátttakendur eru:

  • Þorbjörg Daphne Hall, prófessor í tónlistarfræðum við LHÍ og fundarstjóri samtalsins

  • Lara Hoffmann, nýdoktor við Menntavísindasvið HÍ og sérfræðingur við Rannsóknamiðstöð HA

  • Hlynur Jónasson, verkefnastjóri Kúnstpásu

  • Martyna Karolina Daniel, verkefnastjóri aðgengis og samfélagslegrar þátttöku á Borgarbókasafni

  • Lara Hoffmann, nýdoktor við HÍ og sérfræðingur við Rannsóknamiðstöð HA

Facebook-viðburður

Previous
Previous

Heimsókn RSSG til UOC í Barcelona

Next
Next

Handan heildarinnar: Útflutningur norrænna bókmennta