Styrkþegi RSSG fjallar um sjálfbærni sjálfstæðra sviðslista

Eyrún Ævarsdóttir, meistaranemi í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst og styrkþegi RSSG.

Eyrún Ævarsdóttir, meistaranemi í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst, hlaut nýverið styrk úr meistaranemasjóði RSSG fyrir verkefnið Rými fyrir sviðslistir? - Árangur og sjálfbærni sjálfstæðra sviðslista í íslensku menningarlandslagi.

Markmiðið með verkefninu er að greina hvers konar skipulagsheild gæti gagnast sjálfstæðum sviðslistum á Íslandi og gert þeim hluta fagfólks í sviðslistum sem ekki er fastráðinn við sviðslistastofnanir, auðveldara að stunda list sína, skapa og koma verkum sínum á svið og mæta þar áhorfendum. Skoðað verður hvaða þættir eru mikilvægir til að stuðla að árangri slíkrar skipulagsheildar, og því að hún öðlist styrk og sjálfbærni í starfsemi sinni og geti þannig stutt við sjálfstætt sviðslistafólk. 

Þetta var í fjórða sinn sem RSSG úthlutar úr meistaranemasjóðnum.

Við óskum Eyrúnu innilega til hamingju með styrkinn!

Next
Next

RSSG leitar að háskólanema í rannsóknaverkefni