Könnun um tónleikahald í Reykjavík komin í loftið!
Hljómsveitin Skurðgoð að spila í Kaldalóni í Hörpu
Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) vinnur að rannsóknarverkefni fyrir Tónlistarborgina Reykjavík um stöðu og framtíð lifandi tónlistarflutnings í borginni. Verkefnið er unnið í samstarfi við Michael Hendrix, tónlistarmann, hönnuð og kennara.
Sett hefur verið af stað könnun þar sem leitast er eftir svörum við spurningum um reynslu tónlistarflytjenda af tónleikahaldi í Reykjavík. Við hvetjum því tónlistarfólk sem kemur fram til þess að svara könnuninni og leggja sitt af mörkum við gagnaöflun um þróun tónleikastaða og tónleikahalds í borginni. Vonast er til þess að könnunin verði sett fyrir árlega svo greina megi þróunina með merkjanlegum hætti. Ekki ætti að taka meira en 10 mínútur að ljúka könnuninni.
Lesa má nánar um verkefnið HÉR.