RSSG leitar að háskólanema í rannsóknaverkefni

Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) og Háskólinn á Bifröst hlutu nýverið styrki úr Safnasjóði og Nýsköpunarsjóði námsmanna til að vinna að rannsóknum um starfsemi og gesti viðurkenndra safna á Íslandi. Frekari upplýsingar um styrkina má nálgast hér.

Rannsóknarteymið leitar nú að háskólanema til starfa við verkefnið. Um er að ræða sumarstarf með stuðningi úr Nýsköpunarsjóði námsmanna, en möguleiki er á stærra starfshlutfalli eða lengri samningstíma með þátttöku í stærra verkefninu.

Frekari upplýsingar um starfið og umsóknarferlið má finna á rssg.is/sumarstarf2026

Next
Next

Styrkir úr Safnasjóði og Nýsköpunarsjóði námsmanna