Samtal um skapandi greinar hefst á ný
Viðburðaröðin Samtal um skapandi greinar hefur göngu sína á ný fimmtudaginn 1. október með samtali um menningarhátíðir og innviði sveitarfélaga.
Menningarhátíðir gegna fjölbreyttu hlutverki í samfélaginu. Þær skapa vettvang fyrir listir og menningu, efla samfélagslíf og geta haft veruleg áhrif á byggðaþróun, atvinnulíf og ímynd staða. En hvaða innviðir þurfa að vera til staðar svo hátíðir geti orðið til, vaxið og fest rætur? Og hvaða hlutverki gegna sveitarfélög í því að styðja við slíka starfsemi?
Á viðburðinum nálgast þrír reynslumiklir sérfræðingar viðfangsefnið frá ólíkum sjónarhornum.
Áskell Heiðar Ásgeirsson fjallar um aðgengi að fjármagni og öðrum innviðum fyrir frumkvöðla og hátíðarhald í minni sveitarfélögum og deilir reynslu sinni sem Bræðslustjóri á Borgarfirði eystri. Meðal annars verður rætt hvert aðstandendur hátíða geta leitað eftir stuðningi og hvaða innviðir þurfa að vera til staðar til að gera framkvæmd þeirra mögulega.
Erna Kaaber rýnir í fjármögnun svæðisbundinna aðgerðaáætlana og menningarinnviða sveitarfélaga. Hún fjallar meðal annars um hvernig þróunin birtist í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027, hvernig menning er skilgreind þegar kemur að opinberri fjármögnun og hvernig ólík verkefni sveitarfélaga keppa um takmarkað fjármagn.
Þórgnýr Dýrfjörð setur menningarhátíðir í samhengi við grunnþjónustu sveitarfélaga og þróun menningarlífs á Akureyri. Hann veltir meðal annars upp hvaða samfélagslega hlutverki hátíðir gegna, hverjir njóta góðs af þeim og hvernig sveitarfélög geta skapað jarðveg fyrir öflugt menningarstarf.
Viðburðurinn fer fram 1. október 2026 kl. 08:30–10:00 í húsakynnum Fenris Creations á 3. hæð í Grósku, Kristínargötu 1, Reykjavík.
Nánari upplýsingar og skráning hér: rssg.is/hvadtharfadraeda
Viðburðinum verður einnig streymt. Að erindum loknum lýkur streyminu og opnað verður fyrir umræður meðal fundargesta á staðnum. Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.
Samtal um skapandi greinar er viðburðaröð á vegum Rannsóknaseturs skapandi greina í samstarfi við Fenris Creations. Markmið samtalanna er að skapa vettvang fyrir umræðu, þekkingarmiðlun og ólík sjónarhorn á málefni sem snerta menningu og skapandi greinar.