Nýtt tímabil RSSG er hafið!
RSSG hefur birt starfsáætlun sína fyrir starfsárið 2026–2027, það fyrsta innan nýs þriggja ára rekstrarsamnings við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Á fyrstu starfsárunum var megináhersla lögð á uppbyggingu setursins, þróun samstarfs, tengslamyndun og miðlun. Á nýju tímabili verður áfram byggt á þeim grunni með aukinni áherslu á fræðilega og hagnýta rannsóknastarfsemi, þróun þekkingargrunns og útgáfu rannsóknarniðurstaðna.
Næstu þrjú árin ætlar RSSG að festa sig í sessi sem þekkingarmiðstöð sem tengir saman rannsakendur, fagaðila, stjórnvöld og hagsmunasamtök með hagnýtri þekkingu.
🟢 Á meðal helstu verkefna eru fræðilegar rannsóknir, þróun mælaborðs skapandi greina, þjónusturannsóknir, uppbygging rannsakendanets og þróun nýrra innlendra og alþjóðlegra rannsóknaverkefna.
🟢 RSSG vill jafnframt efla samstarf við háskóla, stjórnvöld, fagvettvang og aðila innan skapandi greina og bjóða fram rannsóknarþekkingu og ráðgjöf við þróun og framkvæmd rannsóknaverkefna.
Markmiðið er að byggja upp sterkari þekkingargrunn um menningu og skapandi greinar og styðja þannig við rannsóknir, samtal, stefnumótun og ákvarðanatöku á sviðinu.
Á starfsárinu getið verða meðal annars unnar rannsóknir á starfsemi safna, stöðu tónleikastaða, tónleikaneyslu, stöðu handverksfólks, vinnumarkaði menningar og skapandi greina og íslenskri tónlist á streymisveitum.
🔶 Aðilar sem hafa hugmyndir að rannsóknarverkefnum eða áhuga á samstarfi við RSSG eru hvattir til að hafa samband: rssg@rssg.is
Nánar um starfsáætlunina HÉR