Í nýjasta fréttabréfi Rannsóknaseturs skapandi greina (RSSG) er sjónum beint að rannsóknum, viðburðum og samstarfi sem varpa ljósi á stöðu og samfélagslegt mikilvægi menningar og skapandi greina.
Meðal efnis er næsta Samtal um skapandi greinar tileinkað vistkerfi tónlistar á Íslandi á Bransaveislu 2026 um það hvernig ólíkar rannsóknaraðferðir geta aukið skilning okkar á íslensku tónlistarlífi. Einnig er sagt frá rannsóknum á kynjaskiptingu í skapandi störfum og nýlegri rannsókn á því hvernig barneignir hafa áhrif á þátttöku fólks í menningarlífi.
Við beinum jafnframt sjónum að menningarhátíðum og mikilvægi þeirra fyrir samfélög, en í Viðburðavarpinu má hlusta á samtal Heiðars og Þórgnýs um hlutverk hátíða og tengsl þeirra við innviði sveitarfélaga.
Þá segjum við frá því hvernig RSSG eflir tengsl sín við háskólasamfélagið og veltum upp spurningunni: Hvaða áhrif hefur skapandi starf á samfélagið þitt? Með því viljum við hvetja til samtals um fjölbreytt verðmæti skapandi starfs og hvernig megi betur skilja og meta áhrif þess á samfélagið.
Lestu nýjasta fréttabréf RSSG HÉR
Viltu fylgjast með rannsóknum, viðburðum og umræðu um menningu og skapandi greinar? Skráðu þig á póstlista RSSG.