Samtal um skapandi greinar:
Auglýsingar - fortíð, nútíð, framtíð
Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG), í samstarfi við Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA), Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og CCP, býður í samtal um skapandi greinar fimmtudaginn 7. maí klukkan 8:30 –10:00 í húsakynnum CCP Í Grósku, 3. hæð, að Kristínargötu 1, 102 Reykjavík. Viðburðurinn er á dagskrá HönnunarMars 2026 og erindin verða einnig í beinu streymi.
Á samtalinu verður fjallað um hvernig auglýsingageirinn hefur þróast á undanförnum árum og þær áskoranir og tækifæri sem auglýsingastofur standa frammi fyrir, ekki síst í tengslum við nýja tækni. Hvað hefur breyst og hvernig mun auglýsingageirinn líta út eftir 10 ár?
DAGSKRÁ
8:30 Kaffi og spjall
8:40 Setning fundar
8:45 Erla María Árnadóttir, stefnustjóri sköpunar hjá Hvíta húsinu:
Um mismunandi tímamót í auglýsingageiranum síðasta áratuginn
9:00 Anna Kristín Kristjánsdóttir, formaður SÍA - Sambands íslenskra auglýsingastofa:
Um tölfræðina og hvað hún segir okkur um stöðu auglýsinga í dag
9:15 Sigtryggur Magnason, forstöðumaður miðlunarsviðs hjá Samtökum atvinnulífsins:
Um sýn auglýsenda
9:30 Umræður - streymi lýkur
10:00 Fundarslit
CCP býður fundargestum upp á kaffi og léttan morgunverð.
Vinsamlegast skráið mætingu hér til hliðar.