Nemastarf við rannsóknarverkefni um safnagesti og söfn á Íslandi
Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) leitar að háskólanema í sumarstarf við rannsóknarverkefni um gestatölur viðurkenndra safna á Íslandi. Verkefnið, Safnagestir, hlaut nýlega styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna og tengist stærra rannsóknarverkefni, Söfn á Íslandi, sem RSSG leiðir og hlaut styrk frá Safnasjóði 2026. Söfn á Íslandi miðar að því að efla þekkingu, túlkun og miðlun gagna um starfsemi safna á Íslandi. Fyrir hæfan einstakling gæti skapast tækifæri til þátttöku í stærra rannsóknarverkefninu, samhliða verkefninu Safnagestir, eða að því loknu.
Um verkefnið
Gestatölur eru mikilvægur mælikvarði fyrir starfsemi safna á Íslandi en takmörkuð þekking er til á því hvernig talning og flokkun gesta fer fram á milli safna. Verkefnið beinir sjónum að þessum spurningum með sérstakri áherslu á ferðamenn sem safnagesti. Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á hvað felst í opinberum gestatölum viðurkenndra safna, hvaða samanburð þær leyfa og hvar takmarkanir liggja.
Verkefnið er bæði megindlegt og eigindlegt: Annars vegar verður unnið með gagnasafn Safnaráðs, þ.e. hreinsun og greiningu gagna, samanburð milli safna og yfir tíma. Hins vegar verður hönnuð og framkvæmd eigindleg gagnasöfnun, þ.e. spurningalistar og/eða stutt viðtöl við forsvarsfólk safna.
Afraksturinn verður þríþættur: Endurbætt gagnasett um safnagesti, rannsóknarskýrsla með helstu niðurstöðum, og grunnur að frekari rannsóknum.
Hlutverk og helstu verkþættir
Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við umsjónarmenn og mun viðkomandi njóta leiðsagnar í öllum verkþáttum. Meginverkefni eru:
Yfirferð og kortlagning á uppbyggingu og innihaldi gagnasafns Safnaráðs
Hreinsun, samræming og megindleg greining gestatalna, þ.m.t. samanburður milli safna og yfir tíma
Hönnun og framkvæmd eigindlegrar gagnasöfnunar hjá forsvarsfólki safna
Samþætting megindlegrar og eigindlegrar greiningar
Ritun rannsóknarskýrslu og frágangur endurbætts gagnasetts með lýsigögnum
Hæfnikröfur
Nemandi sé skráður í háskólanám (á grunn- eða meistarastigi)
Háskólagráða sem nýtist í starfi
Reynsla og/eða þekking á megindlegri og eiginlegri aðferðafræði
Góð greiningarhæfni
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Góð hæfni í íslensku í ræðu og riti
Áhugi á menningarmálum og safnastarfi er kostur
Kunnátta í R eða Python er kostur
Áhugi á þátttöku í frekari rannsóknum á þessu sviði er kostur
Um 60% starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní eða fyrr. Starfið er fjármagnað með styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna auk mótframlags frá RSSG að upphæð 100.000 kr. á mánuði. Fyrir réttan einstakling er möguleiki á hærra starfshlutfalli í gegnum þátttöku í stærra rannsóknarverkefninu.
Frekari upplýsingar veitir Erla Rún Guðmundsdóttir , gegnum netfang erlarun@rssg.is. Umsóknarfrestur er til 10. maí 2026 og umsóknir skulu einnig berast í gegnum tölvupóst til Erlu Rúnar. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og staðfesting á skráningu í háskólanám.