RMF birtir skýrslu um safna- og sýningagesti í Reykjavík
Rannsóknamiðstöð ferðamála hefur gefið út nýja skýrslu, sem ber heitið Survey Among Museum Guests in Three Museums & Exhibitions in Reykjavík, Winter 2025/26 – Pilot Study, en verkefnið var unnið í samstarfi við RSSG og Visit Reykjavík.
Markmið rannsóknarinnar var að afla betri þekkingar á ferðavenjum, áhugamálum, hvötum og upplifun gesta sem heimsækja söfn og sýningar í Reykjavík. Skýrslan veitir innsýn í hlutverk menningartengdrar ferðaþjónustu í höfuðborginni og hvernig söfn og sýningar falla inn í heildarupplifun ferðamanna á Íslandi.
Niðurstöður sýna m.a. að gestir eru almennt mjög ánægðir með safnaheimsóknir sínar. Sérstaklega var jákvætt mat lagt á fræðslugildi safnanna, aðgengi, fjölskylduvænleika og skemmtanagildi. Margir gestir lögðu áherslu á mikilvægi gagnvirkra og upplifunarmiðaðra þátta og bentu niðurstöðurnar til þess að samspil fræðslu og afþreyingar sé lykilatriði í jákvæðri upplifun safnagesta. Þá kom fram að flestir gestir uppgötvuðu söfnin í gegnum netleit eða Google Maps, sem undirstrikar mikilvægi sterks stafræns sýnileika fyrir menningarstofnanir.
Skýrslan er fyrsta skref í frekari rannsóknum á menningarferðamennsku í Reykjavík og getur nýst söfnum, áfangastaðastofum og öðrum hagaðilum við þróun þjónustu og upplifunar fyrir gesti.