Næsti umsóknafrestur í meistaranemasjóð RSSG
Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) veitir rannsóknastyrki til meistaranema. Næsti umsóknafrestur í sjóðinn er til og með 10. september 2026.
Styrkirnir eru ætlaðir meistaranemum sem vinna lokaverkefni um atvinnulíf menningar og skapandi greina og þau fjölþættu og fjölbreyttu samfélags- og efnahagsáhrif sem þessi starfsemi leiðir af sér. Umsækjendur þurfa að stunda meistaranám við viðurkenndan háskóla, hvort sem er á Íslandi eða erlendis, og verkefnið þarf að fjalla um eða hafa tengingu við íslenskt samfélag.