Dögg Sigmarsdóttir ráðin verkefnastjóri hjá RSSG 

Mynd: Patrick Ontkovic

Dögg Sigmarsdóttir hefur verið ráðin í tímabundið starf verkefnastjóra Rannsóknaseturs skapandi greina og mun leysa Steinunni Hauksdóttur af á meðan hún er í fæðingarorlofi. Alls bárust 63 umsóknir og sex umsækjendur voru boðaðir í viðtal. Forstöðukona og fulltrúar stjórnar RSSG stýrðu ráðningarferlinu og mati á hæfni umsækjenda í sameiningu. RSSG fagnar þeim mikla áhuga sem umsækjendur sýndu starfinu og verkefnum setursins. 

Dögg hefur víðtæka reynslu af því að leiða verkefni þar sem listafólk, rannsakendur, stofnanir og fjölbreyttir samfélagshópar koma saman til að miðla þekkingu, móta hugmyndir og varpa nýju ljósi á samfélagsleg viðfangsefni. Hún er menntaður verkefnastjóri og með meistaragráðu í heimspeki frá Universität Bern í Sviss. Hún hefur borið ábyrgð á fjármögnun, þróun og stýringu verkefna hérlendis og í Sviss á sviði inngildingar, borgaralegrar þátttöku og samsköpunar. Auk þess hefur hún setið í stjórnum félagasamtaka í Sviss á sviði menningar, inngildingar og mannréttinda. 

Meðal fyrstu verkefna Daggar hjá RSSG verða að skipuleggja Samtalsröð um skapandi greinar á komandi misseri, miðla fréttum af starfi RSSG á vef, samfélagsmiðlum og í fréttabréfi setursins og halda utan um kynningu og umsýslu Meistaranemasjóðs RSSG, sem nú tekur við umsóknum til 30. september 2026. 

Áhugasömum er velkomið að setja sig í samband við Dögg á dogg@rssg.is

Fram undan er spennandi haustdagskrá hjá RSSG. Við hvetjum ykkur til að skrá ykkur á póstlista RSSG 

Previous
Previous

Nýtt tímabil RSSG er hafið! 

Next
Next

RMF birtir skýrslu um safna- og sýningagesti í Reykjavík