Áhugakönnun um samstarf í doktorsrannsóknum

Ljósmynd: Sindri Swan

Í kjölfar styrks sem fékkst úr Samstarfi háskólanna fyrir verkefnið “Þróun samstarfs háskóla og stofnana um þekkingaruppbyggingu í atvinnuvegi menningar og skapandi  á MA og doktorsstigi” vinnur Háskólinn á Bifröst nú að einum hluta þess verkefnis í samstarfi við Rannsóknasetur skapandi greina. Auk hans eru samstarfsaðilar Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Hagstofa Íslands og Byggðastofnun. 

Liðurinn felur í sér að kortleggja þá aðila sem sæju hag sinn í því að eiga í samstarfi við rannsóknastofnun og doktorsnema í tengslum við doktorsrannsókn á sviði menningar og skapandi greina. Orðið fyrirtæki er notað hér eftir en nær til hvers konar skipulagsheildar, svo sem fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka.

Í þeim tilgangi hefur verið gerð könnun sem ætluð er fyrirtækjum sem sjá hag sinn í samstarfi sem þessu. Samstarfið felur í sér að fyrirtækið kosti doktorsnám sem tengist menningu og skapandi greinum, í tilvikum þegar efni rannsóknarinnar tengist starfsemi eða hlutverki fyrirtækisins, án þess þó að vera hluti af daglegum verkefnum. Athugið að einnig væri möguleiki á að sækja um styrki fyrir verkefnið. Aðili innan rannsóknastofnunarinnar yrði leiðbeinandi og aðili innan fyrirtækisins tæki þátt í vinnunni, t.d. sem meðleiðbeinandi.

Engin skuldbinding felst í því að svara spurningunum heldur er tilgangurinn að fá hugmynd um þörfina og þau tækifæri sem standa doktorsnemum til boða. Í kjölfar úrvinnslu gæfist kostur á ítarlegra samtali. Könnunin verður opin út mánudaginn 29. september 2025.

Nánari upplýsingar og könnunina má nálgast HÉR.

Previous
Previous

Samtal um listræna stjórnun 2. október

Next
Next

Umsögn RSG vegna Atvinnustefnu: Skapandi greinar eru burðarás í atvinnustefnu Íslands