Ný skýrsla varpar ljósi á stöðu lifandi tónlistar í miðborg Reykjavíkur

Rannsóknasetur skapandi greina hefur gefið út skýrsluna Enginn byrjar í Hörpu: Lifandi tónlist, tónleikastaðir og menningarlegir innviðir í miðborg Reykjavíkur. Rannsóknin var unnin fyrir Tónlistarborgina Reykjavík af R. Michael Hendrix og Erlu Rún Guðmundsdóttur. Markmið hennar var að skoða stöðu og þróun lifandi tónlistar í miðborginni, hlutverk tónleikastaða og þau rekstrarskilyrði og aðstæður sem hafa áhrif á starfsemina.

Rannsóknin byggir á blandaðri aðferðafræði, þar sem tölfræðigögn um tónlistarviðburði voru greind samhliða viðtölum við tónleikahaldara og rekstraraðila tónleikastaða. Með því er leitast við að varpa ljósi á bæði þróun tónleikahalds og þau rekstrarlegu og skipulagslegu skilyrði sem liggja að baki henni.

Helstu niðurstöður

Á árunum 2022 til 2025 fjölgaði lifandi tónlistarviðburðum í miðborg Reykjavíkur um 45%, úr 1.931 í 2.794. Við fyrstu sýn bendir þetta til öflugs tónlistarlífs en þegar litið er að gáð kemur í ljós að vöxturinn er afar ójafn. Fjölgunin er mest á meðalstórum og stórum tónleikastöðum, á meðan hlutdeild grasrótarstaða hefur dregist saman.

Niðurstöðurnar benda til þess að tónleikastaðir séu undir auknum fjárhagslegum þrýstingi. Hækkandi rekstrarkostnaður, verðbólga og háir áfengisskattar hafa áhrif á rekstrarlíkön staðanna, á sama tíma og breytingar á ferðamennsku, hegðun tónleikagesta og regluverki hafa áhrif á starfsemina.

Tónleikastaðir eru mikilvægir menningarlegir innviðir þar sem tónlistarfólk þróast, áhorfendahópar myndast og tónlistarlíf borgarinnar tekur á sig mynd. Skýrslan dregur fram að fjölgun tónleika á stærri tónleikastöðum geti ekki ein og sér komið í stað þeirra tækifæra sem minni tónleikastaðir og grasrótarstaðir veita upprennandi tónlistarfólki. Minni tónleikastaðir eru nauðsynlegir fyrir þróun listafólks, uppbyggingu áhorfendahópa og varðveislu sérkenna borgarinnar.

Mikilvæg þekking

Rannsóknin veitir grunn að stefnumótun og frekari mælingum og vekur víðtækari spurningar um hvernig Reykjavík getur stutt við smærri fyrirtæki, skapað tækifæri fyrir ungt fólk og tryggt að stefna í ferðaþjónustu og skattamálum styrki menningarlega sjálfsmynd borgarinnar fremur en að grafa undan henni.

Ása Dýradóttir, verkefnastjóri Tónlistarborgarinnar fagnar útgáfunni og þeim tímamótum sem í henni felast: „Hagsmunabarátta tónleikastaða og listamanna hefur alltaf verið torfær sökum skorts á gögnum. Tími var kominn til að kortleggja stöðuna almennilega og nýta niðurstöður til að vinna áfram í átt að hagstæðara tónlistarumhverfi í Reykjavík; fyrir listamenn, áheyrendur og rekstraraðila. Niðurstöðurnar eru skýrar, það þarf kerfisbreytingu á rekstrarumhverfi staða sem hýsa lifandi tónlistarflutning í borginni.”

Skýrslan var kynnt Menningarráði Reykjavíkur fyrir tveimur vikum og á viðburðinum Samtal um skapandi greinar í gær. Samtalsviðburðurinn var hluti af Bransaveislu Tónlistarmiðstöðvar og Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur og bar yfirskriftina Að vita sínu viti: Rannsóknir og hagnýting þekkingar á vistkerfi tónlistar á Íslandi. Þar var meðal annars rætt um hvernig rannsóknir og þekkingarsköpun geti nýst til að skilja stöðu tónlistarlífsins og móta framtíð þess.

Skýrslan er aðgengileg hér á íslensku og hér á ensku.


Next
Next

Nýtt fréttabréf RSSG: Rannsóknir, samtöl og samfélagsleg áhrif skapandi greina