Hátíðir og leikhús á Act Alone í ágúst
Rannsóknasetur skapandi greina efnir til málþings föstudaginn 8. ágúst 2025, sem verður hluti af dagskrá Act Alone, leiklistarhátíðar þar sem einleikir eru í forgrunni. Hátíðin er haldin árlega á Suðureyri í Súgandafirði og fer fram dagana 6. - 9. ágúst.
Á málþinginu fá gestir tækifæri til að hlýða á kynningar tveggja meistaranema sem hlutu styrk úr meistaranemasjóði RSG í ársbyrjun 2025.
Börg Steinunn Gunnarsdóttir er meistaranemi í leikhús- og performansfræðum við Háskólann í Kaupmannahöfn og segir frá verkefni sínu Óbærilegur léttleiki leikhússins: Uppgangur alþýðuleiklistar á Íslandi.
Þar rannsakar hún hvernig tiltekin leiksýning, Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar, náði að laða að nýjan áhorfendahóp í íslenskt leikhús og hvaða lærdóm megi draga af því fyrir framtíðarleikhús. Markmið verkefnisins er að greina velgengnisþætti sýningarinnar og skoða hvort og hvernig megi endurtaka þennan árangur með öðrum sýningum byggðum formgerð alþýðuleiklistar, með áherslu á menningarlega fjölbreytni og lýðræði. Ásamt því að bæta við þekkingarsvið íslenskra leikhúsfræða opnar verkefnið á möguleika til frekari þverfaglegra rannsókna en ýmislegt mætti yfirfæra á aðra kima menningar og skapandi greina.
Helga Guðrún Jónasdóttir er meistaranemi í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst og mun segja frá verkefni sínu Er menning máttur? (vinnutitill)
Lokaverkefni Helgu snýr að staðbundnum áhrifum á menningu og skapandi greinar sem rekja má til beins stuðnings stjórnvalda. Í verkefninu verður leitað fanga við að þróa félagsefnahagslega mælikvarða fyrir opinberan stuðning á landshluta- og sveitarfélagagrunni, en tilraunir í þá veru hafa skilað heldur rýrum árangri m.a. sökum þess hversu illa grunngögn þjóðhagsreikninga hjá Hagstofu Íslands falla að slíkum staðbundnum greiningum.
Í kjölfar kynninganna fara fram pallborðsumræður þar sem fjallað verður um samfélagshátíðir, mikilvægi þeirra og áhrif á samfélagið.
Nánari dagskrá má nálgast á Facebook-síðu viðburðarins þaðan sem málþinginu verður einnig streymt. Óþarfi er að skrá sig á viðburðinn.
Takið dagana frá og sjáumst á Act Alone!