Styrkþegar Meistaranemasjóðs RSSG 2026 rannsaka hvernig varðveisla þekkingar, nýsköpun og sjálfbærni geta opnað nýja möguleika í skapandi greinum. Hvað gerist þegar gjörningalist verður að safnkosti? Og er hægt að endurvekja íslenska sementsframleiðslu á forsendum sjálfbærni og nýsköpunar? Iðunn Jónsdóttir og Freyr Jónsson rannsaka ólíka heima sem eiga þó ýmislegt sameiginlegt. Bæði vilja þau varðveita og þróa þekkingu og skapa ný tækifæri til framtíðar. Verkefni þeirra þóttu vel útfærð, með skýra tengingu við áherslur setursins og mikla möguleika til hagnýtingar. Við hittum þau til að ræða rannsóknirnar og hvað vakti áhuga þeirra á viðfangsefnunum.
Iðunn Jónsdóttir og Freyr Jónsson hljóta styrk úr Meistaranemasjóði RSSG haustið 2026
„Gjörningurinn sjálfur er liðinn, honum er lokið, og kemur aldrei aftur. En það er mjög mikið eftir.“
Iðunn Jónsdóttir rannsakar hvernig gjörningalist umbreytist í safnkost í verkefninu Frá gjörningi til safnkosts: Umbreyting og eftirlíf gjörninga Gjörningaklúbbsins í Listasafni Reykjavíkur.
Hugmyndin kviknaði þegar hún vann að skráningu og rannsókn á umfangsmikilli gjöf Gjörningaklúbbsins til Listasafns Reykjavíkur. Gjöfin nær yfir tuttugu ára starf hópsins og felur í sér fjölbreytt ummerki um gjörninga sem hafa þegar átt sér stað.
„Ég fékk hugmyndina þegar ég vann að skrásetningu og rannsókn á 20 ára gjöf Gjörningaklúbbsins til Listasafns Reykjavíkur,“ segir Iðunn. Hún hafði þá starfað á safni í nokkur ár og einnig tekið að sér sjálfstæð rannsókna- og skráningarverkefni.
„Þetta átti bara að gerast, gjörningalistin hefur alltaf komið til mín. Þetta hafa alltaf verið verkefni sem mér hafa verið boðin. Ég valdi þetta ekki sérstaklega.“
Það sem vakti sérstakan áhuga hennar var hversu ólíkt það er að skrásetja gjörningalist og hefðbundna efnislega listmuni.
„Í raun og veru er gjörningalist svona flókinn hlutur að skrá og rannsaka. Listaverk getur verið efnislegur hlutur, en gjörningalist kemur í mörgum brotum sem voru hluti af hverjum gjörningi. Gjörningurinn sjálfur er liðinn, honum er lokið, og kemur aldrei aftur. En það er mjög mikið eftir.“
Í rannsókninni greinir Iðunn allt ferlið frá því að gjöf er afmörkuð og skilgreind þar til gjörningaverk öðlast nýtt samhengi innan safnsins. Hún skoðar hvernig ákvarðanir um skráningu, túlkun og varðveislu móta eftirlíf listaverkanna.
„Ég er í raun bara að taka til allt ferlið,“ útskýrir hún og segir rannsóknina vera að þróast í áhugaverða átt. „Hægt og bítandi eru nýir þættir að líta dagsins ljós sem ég er að uppgötva í rannsókninni.“
Skjáskot af heimasíðu Gjörningaklúbbsins www.ilc.is, tekið 4.11.2026
„Mikilvægt að halda í samhengi listaverksins“
Að sögn Iðunnar skiptir frumskráning listafólksins sjálfs miklu máli. Ljósmyndir, búningar, leikmunir og önnur ummerki um gjörninga segja aðeins hluta sögunnar ef upplýsingar um samhengi og hugmyndir að baki verkunum glatast.
„Þú getur verið með listaverk sem missir nánast merkinguna þegar það er tekið úr samhengi. Þegar þú hefur ekki skráð þetta með gripnum, þá er frumskráningin mjög mikilvæg.“
Hún hefur meðal annars tekið viðtöl við meðlimi Gjörningaklúbbsins og leitað til annarra safna til að kanna reynslu þeirra af varðveislu gjörningalistar.
„Það hefur verið gagnrýnt að upphaf gjörningalistarinnar á sjöunda áratugnum hafi ekki verið nægilega skrásett í gegnum tíðina. Það vantar svo oft skjalfestingu,“ segir Iðunn og bendir á mikilvægi þess að höfundarverk og starf listafólks séu varðveitt af þeim stofnunum sem bera ábyrgð á menningararfinum.
Hún vill að rannsóknin hafi hagnýtt gildi fyrir safnastarf og geti nýst þeim sem sinna skráningu listaverka.
„Þetta snýst líka um að hafa eitthvað hagnýtt, að hægt sé að nýta niðurstöðurnar,“ segir hún og útskýrir að hún vilji vinna kafla sérstaklega fyrir fagfólk sem nýtist í skráningarvinnu safnkosts.
„Hvernig getum við verið umhverfisvænni án þess að breyta öllu sem við þekkjum?“
Freyr Jónsson rannsakar möguleika á endurvakningu íslenskrar sementsframleiðslu í meistaraverkefninu Íslenskt sement: Rannsókn á staðbundnum hráefnum, framleiðslu og möguleikum í arkitektúr.
„Ég hef lengi hugsað um hvernig við gætum verið umhverfisvænni í byggingariðnaði,“ segir Freyr. „Hvernig getum við verið umhverfisvænni án þess að breyta öllu sem við þekkjum? Við getum ekki farið að byrja á núllpunkti.“
Þessi spurning varð til þess að hann fór að skoða eitt mest notaða byggingarefni landsins, steinsteypuna, og hvort hægt væri að draga úr umhverfisáhrifum hennar með nýtingu íslenskra hráefna.
„Ég er að rannsaka hvort það væri möguleiki að endurvekja sementsframleiðslu á Íslandi og nýta frekar okkar jarðfræðilegu innviði sem við eigum.“
Sementsframleiðslu var hætt á Íslandi árið 2012. Freyr telur að breyttar forsendur, ný tækni og aukin áhersla á umhverfismál geti opnað fyrir ný tækifæri til innlendrar framleiðslu.
„Í dag eru öll farin að nota umhverfisvænni steypu og við erum farin að hugsa aðeins öðruvísi en við gerðum áður,“ segir hann. „Það er spurning hvort það sé hvati fyrir þessu núna.“
Hann hyggst safna saman fyrirliggjandi rannsóknum á íslenskum hráefnum, kanna nýjar framleiðsluaðferðir og ræða við fyrirtæki sem vinna að þróun byggingarefna.
„Það eru fyrirtæki hér á Íslandi sem eru að skoða þetta. Planið er að tengja við þau, sjá hvað þau eru að gera, hverjar forsendurnar eru og hvaða mótstöður eru líka. Hvað er það sem stoppar fólk í að fara í þessa framleiðslu?“
Sementsturn á Akranesi felldur 22. mars 2019. Ljósmynd: Vilhelm Gunnarsson
Nýsköpun þarf ekki alltaf að byrja á núllpunkti
Freyr bendir á að byggingariðnaðurinn standi frammi fyrir miklum áskorunum í umhverfismálum, en telur að lausnirnar þurfi að taka mið af þeim byggingarefnum og aðferðum sem þegar eru í notkun.
„Af hverju steypu? Ég sé ekki fram á að komast hjá því. Steinsteypa er svo ótrúlega hentug í mjög mörg verkefni. Þá reynum við að koma steinsteypu í núllið.“
Hann telur að nýsköpun geti falist í því að þróa áfram það sem áður var gert, með nýrri þekkingu, tækni og áherslu á sjálfbærni.
„Það er stöðug þróun. Umhverfisvænna sement er til úti, þá hljótum við að geta það líka. Við þurfum að líta á það að vera ekki svona bundin innflutningi.“
Þá vill hann einnig beina sjónum að endingu mannvirkja og mikilvægi þess að hanna til langs tíma.
„Steinsteypa er með ótrúlega góðan endingartíma ef hugsað er vel um hana,“ segir hann og telur að í auknum mæli þurfi að skoða heildarlíftíma bygginga og umhverfisáhrif þeirra.
Freyr vill jafnframt efla íslenska framleiðsluþekkingu og bendir á að þegar framleiðsla færist úr landi geti mikilvæg verkþekking glatast.
„Við þurfum að fara að endurvekja iðnaðinn á Íslandi. Þegar við flytjum allt inn, þá glatast þekkingin.“
Þekkingarsköpun þarf tíma, fjármagn og samstarf
Þótt rannsóknir Iðunnar og Freys séu á ólíkum sviðum koma fram sameiginlegar áhyggjur þeirra af stöðu rannsókna og þekkingaruppbyggingar.
Iðunn bendir á að söfn hafi takmarkað svigrúm til að sinna rannsóknum og þróunarstarfi samhliða öðrum verkefnum.
„Öll skráningarverkefni þarfnast tíma og mannafla,“ segir hún og telur að skortur á fjármagni og starfsfólki geti hamlað þróun nýrra aðferða.
„Það sem skortir helst í safnaheiminum er fjármögnun til að stunda rannsóknir og nýsköpun,“ segir Iðunn. „Mér finnst þekkingarsköpun eiga sér meira stað innan háskólanna en innan safnanna.“
Freyr tekur undir mikilvægi öflugra rannsóknarinnviða.
„Það þarf að efla rannsóknir og þróun. Háskólarnir þurfa að hafa fjármagn og svigrúm til að stunda rannsóknir,“ segir hann.
Hann telur jafnframt að efla þurfi samstarf á milli fagstétta og fyrirtækja í byggingariðnaði, meðal annars til að þróa lausnir sem taki betur mið af íslenskum aðstæðum.
„Það vantar líka nýsköpun í byggingariðnaði. Það eru fullt af íslenskum fyrirtækjum í nýsköpun og það er hægt að fá styrki fyrir einstökum verkefnum, en það þarf að tengja stéttirnar saman.“
Í samtalinu velta þau einnig fyrir sér hvernig meta eigi verðmæti rannsókna og nýsköpunar til lengri tíma. Þegar Freyr ræðir möguleikann á að þróa innlenda og umhverfisvænni sementsframleiðslu bendir Iðunn á að það þurfi að líta til fleiri þátta en skammtímahagnaðar.
„Ég held að þín rannsókn sé að stíga inn í nýtt samhengi, sem snýst ekki bara um skammtímagróða,“ segir hún.
Rannsóknir Iðunnar og Freys varpa ljósi á fjölbreyttan starfsvettvang skapandi greina og hvernig skapandi hugsun, rannsóknir og nýsköpun geta tengst bæði menningararfi og atvinnuþróun.
Annars vegar er leitast við að þróa nýja nálgun á varðveislu gjörningalistar og tryggja að þekking og samhengi hverfulra listaverka glatist ekki. Hins vegar eru rannsakaðir möguleikar á að endurvekja innlenda framleiðslu, nýta staðbundin hráefni og þróa sjálfbærari byggingaraðferðir. Í báðum verkefnum er spurt hvernig hægt sé að nýta fyrirliggjandi þekkingu og reynslu til að skapa ný verðmæti.
Með Meistaranemasjóði styður Rannsóknasetur skapandi greina við rannsóknir sem efla þekkingu á skapandi greinum, starfsskilyrðum þeirra og tengslum við samfélag og atvinnulíf. Verkefni Iðunnar og Freys sýna hvernig rannsóknir á ólíkum sviðum geta lagt grunn að nýjum aðferðum, samstarfi og þróun til framtíðar. Við óskum þeim góðs gengis við rannsóknirnar og hlökkum til að heyra niðurstöðurnar sem þau munu kynna á vettvangi Samtals um skapandi greinar á næsta ári.
Freyr Jónsson og Iðunn Jónsdóttir við móttöku styrks haustið 2026.
Texti og ljósmyndir af styrkhöfum: Dögg Sigmarsdóttir