Skapandi Austurland – spennandi ráðstefna um listir og menningu
Rannsóknasetur skapandi greina tekur þátt í ráðstefnunni Skapandi Austurland – staða, tækifæri og framtíð lista og menningar í landsbyggðunum, sem haldin verður á Austurlandi. Að ráðstefnunni standa Austurbrú, Menningarstofa Fjarðabyggðar og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Ráðstefnan leiðir saman fulltrúa menningarmiðstöðva víða af landinu, stjórnvalda, skapandi greina og rannsóknaumhverfisins til samtals um stöðu menningarstarfs utan höfuðborgarsvæðisins. Áhersla verður lögð á nýja menningarstefnu Austurlands, nýsköpun í skapandi greinum, starfsumhverfi listafólks og uppbyggingu öflugra stoðkerfa fyrir listir og menningu í landsbyggðunum.
Fyrir hönd Rannsóknaseturs skapandi greina, RSSG, flytja erindi þær Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona setursins, og Steinunn Hauksdóttir, verkefnastjóri og sérfræðingur. Erla Rún fjallar um mótun og vöxt RSSG en Steinunn um verkefni þess og rannsóknir, með sérstaka áherslu á landsbyggðir.
Þátttaka RSSG á ráðstefnunni undirstrikar mikilvægi rannsókna, gagna og þekkingarmiðlunar við mótun framtíðar skapandi greina á Íslandi. Setrið hefur það að markmiði að efla rannsóknir á sviði lista, menningar og skapandi atvinnugreina og styðja við samtal milli fræðasamfélags, atvinnulífs, stjórnvalda og grasrótar.
Þá flytur Arnar Sigurðsson, stundakennari í Frumkvöðlastarfi, sem er ný örnámslína við Bifröst, erindi sem nefnist Menning, vertíð og verðmætasköpun. Tinna Guðmundsdóttir, myndlistarkona og menningarstýra, flytur erindið Tengsl og tengingar - vistkerfi menningarlífs Austurlands, og Jóna Hlíf Halldórsdóttir, forseti BÍL, leiðir vinnustofu.
Á dagskrá verða einnig erindi frá fulltrúum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Austurbrúar, Menningarstofu Fjarðabyggðar og miðstöðva listgreina. Að ráðstefnu lokinni tekur við menningardagskrá á Reyðarfirði, Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði.
Ráðstefnan markar jafnframt tímamót þar sem Signý Ormarsdóttir, verkefnastjóri menningar hjá Austurbrú, lætur brátt af störfum eftir rúmlega tveggja áratuga starf að uppbyggingu menningarlífs á Austurlandi!