Stefna og markmið

Meginmarkmið Rannsóknaseturs skapandi greina (RSG) er að efla rannsóknir á atvinnulífi menningar og skapandi greina, með hliðsjón af fjölþættum áhrifum listsköpunar og menningarframleiðslu á samfélagið. RSG er óháður rannsóknaraðili og leggur áherslu á akademískt sjálfstæði í allri starfsemi. Rannsóknasetrið sinnir fjölbreyttum rannsóknum og greiningum á atvinnulífi menningar og skapandi greina og vinnur að því að styrkja rannsóknamenningu og -innviði á þessu sviði.  

Stefna Rannsóknaseturs skapandi greina er 

  • Að vera leiðandi í mótun nýrra rannsóknaverkefna með sókn í rannsóknasjóði 

  • Að kortleggja og miðla fjölbreyttum áhrifum skapandi greina á samfélagið 

  • Að efla gagnaöflun og auka gæði og samræmi gagna sem geta nýst við fjölbreyttar rannsóknir á atvinnulífi menningar og skapandi greina 

  • Að skapa stöðugt rannsóknarumhverfi og stuðla að nýliðun meðal sérfræðinga og fræðimanna á þessu sviði

  • Að stuðla að samráði og samstarfi háskóla, stofnana, stjórnvalda og atvinnulífs og efla fræðandi umræðu, tengslamyndun og miðlun þekkingar um atvinnulíf menningar og skapandi greina 

  • Að fylgjast með alþjóðlegum stefnum og straumum í rannsóknum á þessu sviði og efla alþjóðlegt tengsanet

Starfsemi RSG snýr þannig annars vegar að rannsóknum, greiningum og gagnasöfnun sem ýmist tengjast sókn í rannsóknasjóði eða eru unnar fyrir tilstuðlan verkbeiðenda. Hins vegar eru samskipti og miðlun mikilvægur hluti starfseminnar en í því felst samstarf við fagvettvang, fræðafólk og stjórnvöld, ráðgjöf um rannsóknir og gagnamál og miðlun á verkefnum, bæði frá RSG og öðrum.

Menning og skapandi greinar

Listir og sköpun eru auðlindir sem lúta eigin lögmálum. Menning er það sem þær gefa af sér til samfélagsins. Menning og skapandi greinar er samheiti yfir listir, sköpun, hugverk og menningu, og það atvinnu- og viðskiptalíf sem af þeim skapast.

Halla Helgadóttir, 2020

Skapandi greinar eru vaxandi drifkraftur í verðmætasköpun og samfélagslegri þróun hér á landi, sem annarsstaðar. Fólk sem starfar í skapandi greinum hagnýtir listsköpun og menningu til verðmætasköpunar, hvort heldur efnahagslegrar eða samfélagslegrar.

Til skapandi greina teljast meðal annars bókmenntir, fjölmiðlun, hönnun og arkitektúr, kvikmynda og sjónvarpsþáttagerð, safnastarf og miðlun menningararfs, myndlist og starfsemi gallería, sviðslistir, tónlist, prentun, tölvuleikjagerð og starfsemi auglýsingastofa.

Sögulegar vörður í átt að stofnun Rannsóknarseturs skapandi greina